fbpx

Frjósemismeðferðir

aLHLIÐA ÞJÓNUSTA

Medical Travel býður upp á frjósemismeðferðir í samstarfi við IVF Riga

IVF Riga er ein þekktasta kvensjúkdóma- og frjósemisklíníkin í Norður Evrópu. Forstjóri fyrirtækisins er Dr. Violeta Fodina, sem er vel þekktur sérfræðingur í meðferð á ófrjósemi. IVF Riga býður upp á allar þær greiningar, rannsóknir og meðferðir sem þú gætir þurft á að halda.

IVF Riga byggir á víðtækri og árangursríkri reynslu til fjölda ára við tæknifrjóvgun og býr yfir tækni og þekkingu til að takast á við flóknustu tilfellin, jafnvel eftir margar misheppnaðar frjósemismeðferðir.

IVF Riga er eina erfðarannsóknarstöðin í Norður Evrópu og Eystrasaltslöndunum sem býr yfir þeirri tækni að geta greint erfðasjúkdóma strax á fósturvísstigi. Fleiri aðilar bjóða þessa þjónustu en þurfa að senda fósturvísana til annarra landa í greiningu.

IVF Riga vinnur undir ströngum ISO Gæðastöðlum. ISO 9001:2008 og ISO 15189:2013, sem tryggir að unnið er eftir evrópskum gæðastöðlum.


Kostir frjósemisaðgerða hjá IVF Riga

  • Lettand er friðsælt og fallegt land með framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.
  • Meðferð í boði fyrir einstæðar konur. Góður árangur jafnvel í flóknustu tilfellunum.
  • Erfðapróf eru gerð á staðnum og niðurstöður liggja fyrir eftir nokkra daga. Eingöngu heilbrigðir fósturvísar eru settir upp.
  • Við val á fósturvísum til uppsetningar er notast við hinn einstaka “EmbryoScope+ incubator”, sem er byltingarkennd tækni við tæknifrjóvganir.
  • Gjafaprógramm; egg, sáðfrumur, og ættleiðing fósturvísa. Enginn biðlisti!
  • Meðferð í boði fyrir konur upp að 55 ára aldri.
  • Engin BMI (Body Mass Index) krafa.
  • Þinn eigin persónulegi tengiliður.

Fagfólk IVF Riga

Dr. Violeta Fodena

Er forstjóri IVF Riga og þeirra helsti sérfræðingur.

Skoða á heimasíðu IVF RIGA

Dr. Irina Kalvāne

Er sérfræðingur á sviði frjógvunar og kvensjúkdóma

Skoða á heimasíðu IVF RIGA

Dr. Alina Seleznova

Er helsti sérfræðingur IVF Riga á sviði ófrjósemis.

Skoða á heimasíðu IVF RIGA