
Í janúar 2018 var ég búin að ná botninum og missa öll tök á sjálfri mér. Ég var orðin alltof þung og farin að verkja um allt í líkamanum. Ákvað ég þá með hjálp yndislegar vinkonu að nú væri nóg komið og ég skildi leita mér hjálpar. Eftir að hafa flakkað um netið og skoðað fullt af siðum setti ég mig í samband við Maríu og var hún með allt á hreinu og alltaf til staðar til að svara öllum spurningum sem ég hafði. Ákvað ég því að fara út með þeim og fór undir hnífinn þann 15.feb 2018.
Ég lenti í frábærum hóp sem gerði þetta líka mun auðveldara. Því þar var fólk í sömu aðstæðum og ég og skildi allan minn tilfinninga rússibana. Aðgerðin gekk eins og í sögu og gæti ég ekki verið ánægðari með læknana og starfsfólkið á sjúkrahúsinu í Sigulda.
Nú er okt 2019 og eru 64kg farin 🙂 þetta er án efa það besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig!
Um tíma fór ég sem tengiliður með hópa til Sigulda og var það alveg ótrúlega gefandi. Að geta miðlað sinni reynslu áfram og leiðbeint fólki. Þetta er jú ótrúlega stór ákvörðun sem fólk er að taka þegar það fer í þetta. En ég segi líka alltaf að þetta er jafnframt það besta sem þú getur gert fyrir sjálfan þig og þá sérstaklega andlegu hliðina. Það er ótrúlega erfitt að vera alltaf að berjast við auka kílóin, svo missir þú nokkur og síðan koma þau aftur og kannski nokkur auka með! Þá fer maður að berja sjálfan sig niður því jú maður er alltaf sjálfum sér verstur.
Brynhildur Ösp Þorsteinsdóttir